Ótrúlegt en satt!
Sælt veri fólkið.
Í tilefni af því að í dag eru níu ár síðan að ég kreisti hana Teklu mína í heimin langar mig að rifja upp söguna af því þegar að hún fæddist.
Ég vil fullvissa ykkur um það að allt sem að hér kemur fram er heilagur sannleikur og stundum er lífið bara eins og léleg sápuópera.
Þetta var á köldu Nóvember kvöldi og enþá átti ég viku eftir í settan dag Láka var boðið í létt vinnu djammm og ég fullvissaði hann um það að ég væri sko ekkert að fara að eiga strax þannig að hann skundaði glaður i bragði til Finnboga í djammið.
þegar að klukkan var byrjuð að tifa í tvö fæ ég allt í einu þessa svakalegu pissutilfinningu og dríf mig á klósettið og er varla sest þegar að ég heyri þennan háa smell og niðurúr mér gusast þvílíkur vatnsflaumur og mig grípur svakaleg hræðsla og langar skyndilega til að hætta við þetta allt saman .
Ég hringi í Láka sem að eins og strákarnir lýsa því hendist uppúr sófanum hjá Finnboga og er komin út í bíl með Lindu driver á nokkrum sekúntum.
Þegar að hann mætir á staðinn er mamma komin og og búið að hringja á sjúkrabíl. Ég skipa Láka að setja nauðsynjavörur í tösku og svo er ég flutt uppá sjúkrahús og inná stofu .
Einhvern tíma tók að finna Ljósmóðurina á vakt og þegar að hún loksins mætir þá tilkynnir hún mér að hún nenni þessu enganveginn hún hafi verið heima að slappa af! Og af henni leggur sterkur þefur sem að ég get ekki alveg áttað mig á eins og rosalega sterk tópaslykt.
Svo byrjar ballið og ég engist með hríðar og er komin með grímuna á andlitið sogandi í mig deyfigasið sem að ljósan setur Láka í að stjórn á, ég öskrandi á meira magn og hann segjandi "nei Sóley þetta er nóg"
Úff! hann var orðin vel hræddur við mig þá ;-)
Ljósan væflast eitthvað í kringum mig segjandi mér hvað hún nenni þessu EKKI og hvað hitt og þetta sé ógeðsslegt, tengt fæðingunni og sest við rúmið og byrjar að strjúka á mér bakið. Láki skreppur fram og á meðan ég ligg í fósturstellingunni með grímuna á mér heyri ég allt í einu háar hrotur!!´
Ég gjóa augunum yfir grímuna á ljósuna sem að liggur með hausinn á bakinu á mér STEINSOFANDI!! OG HRJÓTANDI EINS OG HRÚTUR MEÐ SLEFUNA ÚR MUNNVIKINU.
Ég lít með hryllingi á Láka sem að í þessu kemur inná stofuna með vatn handa mér, við horfumst í augu og Láki fer að ræskja sig hátt við hliðina á kellingunni sem að hrekkur upp þurkar slefuna og heldur áfram að strjúka mér á bakinu gefandi okkur nákvæmar lýsingar á öllum hennar kærustum bólfélögum og stað og stund á því hvenær og hvernig hún missti meydómin 40 árum áður, það bókstaflega suðaði í eyrunum á okkur!
En í barnaskap okkar þorðum við ekki að klaga hana þvi að hún var eina ljósmóðirinn í bænum og við héldum að þetta væri ekki hægt án hennar.
Svo kemur Tekla í heimin áfallalaust og eru þá læknir og hjúkkur komnar á staðinn og við höldum að við séum laus við kellinguna.. en Nei!! þegar að fæðingin er búin fer læknirinn og allt hjúkrunarfólk. Láki tekur Teklu vafða inní handklæði og labbar með hana framm alveg í sæluvímu yfir erfingjanum.
Ég aftur á móti ligg í svita mínum með fæturnar uppí loftið í ístöðunum ein með kellingunni inná stofunni og bíð þess sem verða vill.
Hún hvessir glyrnunum á mig og segir " ÉG NENNI EKKI AÐ SAUMA ÞIG"!! ÉG ÆTLA AÐ FARA FRAM OG FINNA EINHVERN SEM AÐ NENNIR AÐ SAUMA ÞIG Ég horfi skelfingar augum á hana strunsa út af stofunni ég liggjandi í stellingu sem að engri lifandi manneskju finnst gaman að liggja í og hugsa með mér hvað ætli ég verði hérna lengi og hvern ætli hún byðji um að sauma mig
Svo birtist hún skömmu seinna ein og og segist víst verða að sauma mig því að það nenni engin annar að gera það og svo stoppar hún í herlegheitin og hrósar sjálfri sér fyrir snilldina við hvert spor.
Þegar að þetta er loksins búið skelli ég mér í sturtu og hlakka mikið til að fá að skríða uppí rúm og sofna vel. Ég næ í töskuna sem að Láki hafði pakkað í æsingnum í byrjun og týni upp íþrótta buxurnar hanns Láka tannburstan hanns Láka og fleiri hluti sem að Láka finnst gott að hafa með SÉR þegar að hann gistir annarstaðar!!!! hann biður mig afsökunar í bak og fyrir og skilur ekkert í þessu hafði náttlega verið við skál þegar að þessi verknaður var framin 
En ég skríð upp í rúmið og fæ mér laaangan góðan svefn..
Ég vil taka það fram að þessi kona er ekki starfandi Ljósmóðir í dag og átti víst við mikið drykkjuvandamál að stríða.
Ekki taka kallinn með í búðina ;-)
This letter was recently sent by Tesco's Head Office to a customer in Oxford:
"Dear Mrs. Murray,
While we thank you for your valued custom and use of the Tesco Loyalty Card, the Manager of our store in Banbury is considering banning you And Your family from shopping with us, unless your husband stops his Antics.
Below is a list of offences over the past few months all verified by our Surveillance cameras:
1. June 15: Took 24 boxes of condoms and randomly put them in people's Trolleys when they weren't looking.
2. July 2: Set all the alarm clocks in Housewares to go off at 5-minute Intervals.
3. July 7: Made a trail of tomato juice on the floor leading to Feminine Products aisle.
4. July 19: Walked up to an employee and told her in an official tone, "Code 3″ in housewares..... And watched what happened.
5. August 14: Moved a ‘CAUTION - WET FLOOR' sign to a carpeted area.
6. September 15: Set up a tent in the outdoor clothing department and Told Shoppers he'd invite them in if they would bring sausages and a Calor Gas Stove.
7. September 23: When the Deputy Manager asked if she could help him, He Began to cry and asked, "Why can't you people just leave me alone?"
8. October 4: Looked right into the security camera; used it as a mirror, Picked his nose, and ate it.
9. November 10: While appearing to be choosing kitchen knives in the Housewares aisle asked an assistant if he knew where the antidepressants Were.
10. December 3: Darted around the store suspiciously, loudly humming The"Mission Impossible" theme.
11. December 6: In the kitchenware aisle, practised the "Madonna look" Using different size funnels.
12. December 18: Hid in a clothing rack and when people browsed, yelled "PICK ME!" "PICK ME!"
13. December 21: When an announcement came over the loud speaker, Assumed the foetal position and screamed "NO! NO! It's those voices again."
And; last, but not least:
December 23: Went into a fitting room, shut the door, waited a While; then yelled, very loudly, "There is no toilet paper in here."
Yours sincerely,
C. Brown
Store Manager
Allt er nú til!!
Þannig var að tvær vinkonur fara til Spánar í skemmtiferð og eru að djamma og djúsa diskótekunum á
eins og Íslenskra ungmenna er von og vísa. Þær hitta á einu diskóinu spænskan gæja og önnur þeirra fer að dansa við hann og kyssa hann og svoleiðis og hann býður henni í lok kvöldsins að koma með sér heim.
Hún er ekki alveg á því og ræðir það við vinkonu sína sem segir henni að skella sér bara með honum hann sé sætur og flottur gæji.
Stelpan er ekki alveg tilbúin í að fara með honum verandi í útlöndum og allt þekkjandi hann ekki neitt,þannig að hún neitar honum um það. Hann réttir henni blað með heimilisfanginu sínu og símanúmeri ef að henni skyldi snúast hugur.
Svo er hún komin heim til Íslands og byrjar allt í einu að blána um varirnar og bólgna upp, hún fer til Læknis sem að ransakar hana vel og kemur svo með kollega sínum inn á stofuna og þeir fara að spyrja hana kvort að hún eigi kærasta sem að hún neitar, þá spyrja þeir hana hvort að hún hafi verið með einhverjum nýlega og hún segist þá hafa kysst strák út á spáni viku fyrr.
þá spyrja þeir hana hvort að hún sé með heimilisfangið hanns eða síma og hún segist nú reyndar vera með bæði...
Þá segja þeir henni að hún sé með sýkingu sem að getur aðeins komið ef að maður hafi verið í náinni snertingu við LÍK og að það sé mikil hætta á að strákurinn sem að hún hafi verið að kyssa sé náriðill.
það er haft samband við lögregluna út á spáni sem að hefur upp á gæjanum og finnur tvö lík heima hjá honum 23 og 26 ára stúlkur sem að höfðu verið týndar í einhvern tíma og gaurinn var búin að vera að hamast á sér til ánægju.
Stelpu greyjið var líklegast næsta fórnarlamb þessa geðsjúklings sem að hefði þá drepið hana þegar að heim var komið og haft hana sem dúkku.
Og hver er svo boðskapurinn í þessari sögu??

Hitt og þetta
Jæja gott fólk eins og flestir sem að mig þekkja vita þá bjó ég til 11 ára aldurs á kúabúinu / seljalandsbúinu sem að er húsið með flata þakinu og er við gamla vegin inn í skóg (skógarbraut).
Þar stundaði ég ýmis bellibrögð og og tók uppá ýmsu sniðugu
( það verða engar sögur af því að þessu sinni.)
Bróðir minn sendi mér myndir af ýmsum stundum hjá fjölskyldunni og þar á meðal þessa af mér og mömmu á góðri stundu að njóta góðaveðursins á grunninum sem að seinna var byggt herbergi okkar mæðgna.
Eins og glöggir sjá er appelsínugul kanna á borðinu.
Hverjir muna eftir því þegar að mjólkin var í pokum sem að var klippt hornið af og sett í þessar forlátu mjólkurkönnur????? Er ég kannski bara orðin svona gömul

Ein minning frá þessu herbergi sem að seinna var byggt á þessum grunni hér að ofan.
það var semsagt húsið svo gekk maður í gegnum vaskahúsið þar sem þvottvélarnar voru og fl. svo kom herbergið okkar mömmu .
Eina nóttina þegar að við mæðgur sváfum á okkar græna í nýja herberginu vakna ég við það að yfir okkur stendur maður í myrkrinu og talaði mjög illa og óskiljanlega drafandi íslensku.
Ég hendist upp í rúminu og hristi mömmu kröftuglega og segi henni að það sé maður í herberginu.
mömmu bregður náttlega og hendist uppúr rúminu og skipar manninum að koma sér út!! Hann röflar eitthvað óskiljanlegt og kjagar út með mömmu á eftir sér.
þegar mamma hverfur á eftir manninum út um hurðina heyri ég þessi líka rosa læti það er hreinlega eins og allt í þvottahúsinu hafi farið á flug og ég hleyp fram í dyrnar logandi hrædd við hvað hafi skeð.
Sé þá mann aumingjan liggja á óhreina þvottinum okkar með útglennta fætur og hendur eins og hann sé sofandi
Mamma lítur á mig svellköld í myrkrinu og segir hin rólegasta HANN ER DAUÐUR!
Barnaheilinn minn gat ómögulega skilið hvernig mamma gat verið svona róleg.....Það var dáin maður í þvottahúsinu okkar og hún fór bara að hella uppá kaffi !!Ætli mamma hafi kæft mannin í óhreinatauinu okkar ....
Ég stari á mömmu í skelfingu sem að gengur hin rólegasta inn í stofu og hringir í bróðir minn og biður hann um að koma svo hringir hún í son þessa manns sem að hún vissi greinilega hver var og þeir birtast þarna skömmu síðar bróðir minn og sonur þessa manns sem greinilega hafði flýtt sér mikið því að hann var í gallabuxum og engu öðru!!!
Það var ekki á syninum að sjá að honum fyndist neitt hræðilegt að pabbi hanns hefði látið lífið í skítugum fata lörfunum okkar, heldur slengir hann pabba sínum yfir öxlina á sér umlar afsökunarbeiðni við mömmu og hverfur út í myrkrið með pabban dáin á öxlinni.
Seinna þegar ég komst til vits og ára lærði ég það að maðurinn hafði verið að koma af skemmtistað sem að var í þá daga inní Ljóni og var á leiðinni í bústað inní skó þegar að hann álapaðist inni í heimsókn til okkar
Og að að er hægt að deyja án þess að deyja
því að auðvitað var kallin bara víndauður og veit ég ekki betur en hann sé sprellifandi í dag..
Og fyrst ég er í svona gífurlegu bloggstuði þá langar mig að setja inn eina mynd í viðbót af afa mínum og ömmu föður meigin og þeirra börnum, en pabbi minn var fæddur 1911 og ekki mikið um myndatökur í þá daga
og er þetta líklegast ein af fáum myndum sem að til er af honum sem barn. Hann er þessi í miðjunni í matrósarfötunum.
Afhverju er himinin blár?
Sumarið leið stóráfallalaust og hef ég ekki mikið að segja um það.. Ég lennti reyndar í soldið skondnum samræðum við dóttur mína um dagin sem að ég ætla að deila með ykkur.
Þannig var eitt kvöldið að við Tekla vorum að búa okkur undir svefnin og vorum báðar að bursta tennurnar inná baðherbergi þegar að hún segir allt í einu grafalvarlega " Mamma Hildur segir að tippið verði að fara í klobban til að börnin verði til", ég snarhætti að bursta tennurnar og segi með seimingi jaaaá segir hún það.
Hún tekur burstan út úr sér og segir soldið byrstum tón
" hvernig er það mamma viljið þið pabbi ekki gera svoleiðis?"
Ég finn hvernig æðarnar byrja að tútna á enninu á mér og ég horfi á sjálfan mig í speglinum með froðuna lekandi niður á höku og reyni að hugsa upp eitthvað til þessa að snögg enda þessar samræður.
Hún horfir á mig og segir" finnst ykkur það ógeðsslegt??? ?"og skilningurinn skín úr augunum" Mamma þið verðið bara að gera það annars eignast ég aldrei systkini!!!"
uuuhaaaaa hóst tjaaaa ... Ég er alveg að farast og heilinn á mér er á yfirsnúning að hugsa upp eitthvað snjallt og einfalt svar og segi " það er ekki alltaf nóg maður ræður því ekki alveg sjálfu guð ræður því líka" segi ég og held nú að ég sé sloppin.
"Vill guð ekki að ég eignist lítið systkin"????? Og bláu augun glansa pínulítið..
HJÁLP!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Láka er hvergi að sjá til að bjarga mér frá þessum spurningaflaumi og þá segi ég " sko Guð ákveður hvenær fólk fæðist og hann er búin að ákveða tíman sem systkini þitt kemur og hann er bara ekki alveg strax.
Hún horfir á mig í smástund og meltir þessar upplýsingar leggur svo frá sér tannburstan og skríður upp í rúm. Ég er löngu búin að kyngja tannkreminu stend eftir inná baðherbergi og vona að ég hafi afgreitt þetta mál í bili .
There is a fire down town..
Eftir langan og stranga vinnutörn lagðist ég til hvílu og sveif inní draumalandið en hafði ekki sofið lengi þegar að í gegnum svefnin heyri ég nokkrar raddir kalla fyrir utan húsið "barþjónn vaknaðu" vaknaðu það er kveiknað í !!!!
Ég er smástund að átta mig á að það er í alvörunni verið að öskra eitthvað fyrir utan og staulast að lokum út í glugga og kíki niður.Þar standa þrír af góðkunningjum mínum öskrandi og veifandi öllum öngum, í sömu andrá sé ég tvo slökkviliðsbíla leggja fyrir utan.Ég glaðvakna og stekk á Láka sem að hafði ekki rumskað og hristi hann til og frá öskrandi á hann að það sé kveiknað í og hann skuli finna köttin.. Greyjið strákurinn hröklast á fætur og þorir ekki öðru en að leyta að kattar fjandanum sem að á þessum tíma var barnið mitt.Ég rýk inn í fataskáp til að skella mér í óbrennanleg föt og tek út bol og hendi mér í hann, svo fer ég að leyta að buxum eða einhverju til að hylja á mér sitjandann milli þess sem að ég öskra á Láka að finna köttin.
Ég tek út hverja peysuna og bolina á fætur öðrum og hendi þeim á gólfið, það var eins og allar mínar buxur og pils hefði gufað upp og var ég komin langleiðina meða að klæða mig í peysu að neðan eða halda áfram að leyta að buxum og brenna kannski inni.
Þvílikt og annaðeins adrennalínflæði hefur aldrei runið um æðar mínar.
Símin hringir og það er nágranni minn að skipa okkur út úr húsinu Það sé kveiknað í!!
Í sömu andrá ryðjast inn tveir slökkviliðsmenn í fullum skrúða og stari ég á þá með trylling í augunum standandi í peysu hrúgunni sem að ég hafði mokað útúr skápnum mínum og spyrja mig hvar eldurinn sé.
Ég umla eitthvað óskiljanlegt um köttin og Láka og bendi þeim á hvar Láki liggur hálfur undir rúminu í gestaherberginu að reyna að ná kettinum sem að kvæsir og urrar á fullu.
Í þeirri sömu andrá heyrist í talstöðinni að það sé engin eldur, rónarnir hafi haldið sig sjá reik en það hafi reynst ofsjónir sökum ofurölvunar og að við getum farið aftur að sofa.
Við horfum á slökkviliðsbílana bruna burtu ég í tveimur peysum og láki útklóraður haldandi á kettinum,leggjumst svo taugaskjálfandi uppí rúm í fósturstellingu og slökkvum ljósið.
Nei ég er ekki dauð!!
Og af því að ég er ekki persónulegi bloggarinn eða pólitíski bloggarinn eða rómantíski bloggarinn þá held ég áfram að rifja upp minningar mér til minnkunar öðrum til gleði.
Um helgina var okkur hjónaleysunum boðið í mat til þeirra ektahjóna Guðbjarts og Írisar, Láki var á fótboltaæfingu og ég átti að kippa honum með út í Vík.
Einn af fáum göllum við hann Þorlák er sá að hann getur bara ALDREI setið í bíl meðan ég keyri án þess
að vera stanslaust að setja út á aksturslag mitt
Ég er bara fjandi góð með mig skelli sólgleraugunum á nefið og hækka í Sálinni, allt gengur vel þar til við ég er að verða hálfnuð Óshlíðna þá er ég að keyra í gegnum annan vegskálann þá byrjar bílfjandinn að rása á eina hálkublettinum á allri hlíðinni, Láki byrjar að stynja Sóley passaðu þig og í nokkur sekúntubrot vissum við ekki hvort að við myndum enda fyrir ofan veg eða neðan. Til allrar Guðslukku endum við ofanvegar og ég reyni í ofboði að ná stjórn á bílnum meðan láki skrækir eins og kjelllllling!!
Við sitjum svo pikkföst þarna þar til Guðbjartur kemur og dregur okkur út úr skaflinum og var mér tilkynnt pent að Þorlákur þyrfti að vera meðvitundarlaus til þess að það væri sjéns að hann sæti í aftur í bíl með mér
Þessi saga minnir mig pínu á það þegar að ég fékk Lundalúsina og mun ég rifja upp þá sögu hér.
Þannig er að ég hef alltaf átt mjög erfitt með að láta segja mér að ég geti ekki gert eitthvað!!Sérstaklega ef að karlmaður þykist geta það betur sökum kyns síns( já ég er klikk)
En ég var einhverju sinni stödd í þeirri ægifögru eyju Hvalsey með bróður mínum pabba og frændfólki.
Pabbi ég og Simmi bróðir ákveðum að fara að háfa Lunda og þegar að við erum búin að háfa nokkur tugi kvikinda ætlum við að fara heim og Simmi býr til kippur með ca 10fuglum á kippu og segir mér að ég geti sko EKKI BORIÐ TVÆR KIPPUR!!! Og það var eins og við manninn mælt ég þýt eins og elding í kippurnar og byrja að rogast með þær mjóa stíga og fjallvegi
Ég er náttúrulega alveg að drepast því að fjandans fuglarnir voru offitusjúklingar og vógu örugglega hver kippa 50kíló ( ég vil taka það fram að ég var 13 ára )
Þegar að ég er komin hvarf við bróðir minn, hendi þeim frá mér og vef þeim inn í jakkan minn og dreg fuglana í bústaðinn og er rosa kelling þegar að Simmi bróðir kemur á eftir mér.
Þegar að kvölda tekur skil ég ekkert í því af hverju mig stingur svona í innaná lærið og ég er alltaf að nudda og klóra mér en þá versnar stingurinn bara.
Þegar að ég fer að tékka á þessu sé ég bara afturlappirnar á lundalús standa út úr lærinu á mér!! En lúsin nærist á blóði og hafði étið sig á kaf í lærið á mér.
Ég náttúrulega bilaðist og öskraði á allt lifandi í kringum mig að verða mér til bjargar!! Og stökk systir mín til og náði í flísatöng og kippti kvikindinu pakksöddu og feitu úr lærinu á mér og rak það spriklandi framaní mig og sagði sigrihrósandi NÁÐI ÞVÍ!!
Brrrrrr.... ég á enþá erfitt með að sjá Lunda ánþess að um mig fari hrollur og taugakippir
En að sjálfsögðu vildi fólk fá útskýringu á því hvernig lúsar fjandin hafði komist innan á mig og þurfti ég þá að játa fyrir bróðir mínum að þegar að ég var búin að DRAGA fuglana heim þá fór ég aftur í jakkan!!!!
og þá var lúsaparty

E
Thats it!!!!!!
Eins og glöggir vita skreið ég yfir á þrítugsaldurinn fyrir ekki svo löngu en hafði ekki almennilega gert mér grein fyrir afleiðingum þess að komast á fertugsaldurinn fyrr en því var slett framan í mig einn sólríkan febrúar dag.
Þannig var að besta vinkona mín til margra ára hún Thelma var að fara suður til að halda upp á sitt eigið 30afmæli og sat ég í mesta sakleysi mínu inná flugvelli að spjalla við hana.Hafði ég lagt extra mikla vinnu á mig þennan dag í að sparsla og kítta í skorur og yfir skelli, og var bara nokkuð ánægð með útkomuna,var bara í gellu fílingnum, þegar til okkar gengur herramaður einn. Hann vindur sér að okkur og beinir orðum sínum til mín og spyr hvort að ég sé nokkuð konan hanns Láka?
Ég viðurkenni það (treglega)
OG ER ÞETTA DÓTTIR YKKAR??
What !!!!!Ég hvítna og blána í framan Gellufílingurinn lekur af mér og eftir situr gömul og visin hasbin, sem að má þakka fyrir að hafa enþá allar tennurnar
Mér verður litið á Vinkonu mína sem að í allri okkar 15 ára vináttu hefur aldrei brosað eins breitt til nokkurs manns. Og væli ámátlega að þetta sé nú reyndar vinkona mín og hún sé nú bara 10 dögum yngri en ég.
Mann greyjinu verður náttúrulega soldið um og reynir í ofboði að krafsa í bakkann og fer að rekja ættir Thelmu fleiri tugi ættliða aftur í tíman á meðan ég horfi á trefilinn minn og velti fyrir mér hvernig sé best að gera snöru úr honum.
Loksins fer maðurinn og Láki kallar út í vélina og Vinkona mín/Dóttir sem að ég hafði aldrei tekið eftir að hefði svona margar tennur valhoppar út í vél en hvíslar að mér rétt áður( ég er hætt að vera á bömmer yfir að vera að verða þrítug)
WELL CONGRATULATIONS!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ha ha ha
1.HVERS VEGNA ERU KARLMENN GÁFAÐRI Á MEÐAN ÞEIR HAFA MÖK?
(vegna þess að þeir eru tengdir við snilling!)
2. HVERS VEGNA BLIKKA KONUR EKKI AUGUNUM MEÐAN ÞÆR HAFA MÖK?
(þær hafa einfaldlega ekki tíma!)
3. HVERS VEGNA ÞARF MILLJÓNIR SÆÐISFRUMA TIL AÐ FRJÓVGA EGG?
(þær stoppa ekki til að spyrja vegar)
4. HVERS VEGNA HRJÓTA KARLMENN ÞEGAR ÞEIR LIGGJA Á BAKINU?
(pungurinn fellur yfir rassgatið og stöðvar gegnumtrekkinn)
Þið eruð farnar að brosa núna stelpur, er það ekki? ;o)
5. HVERS VEGNA FENGU KARLMENN STÆRRI HEILA EN HUNDAR?
annars væru þeir riðlandi á fótleggjum kvenna í kokteilboðum)
6. HVERS VEGNA SKAPAÐI GUÐ MANNINN Á UNDAN KONUNNI?
(þú þarft jú gróft uppkast áður en þú gerir lokaútgáfuna)
7. HVE MARGA KARLMENN ÞARF TIL AÐ SETJA KLÓSETTSETUNA NIÐUR?
(hmm, veit ekki.....það hefur ekki gerst ennþá)
Einn góður í lokin...
8. HVERS VEGNA SETTI GUÐ KARLMANNINN Á JÖRÐINA?
(vegna þess að titrari slær ekki garðinn)
Vil samt taka það fram að ég elska karlmenn þeir eru æðisslegir


