Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Skráið ykkur á !!!!!

Skráið ykkur á getrvk.com og þá fáið þið netblað sent til ykkar á hverjum fimmtudegi þar er fjallað umm allt sem er skemmtilegt og áhugavert að gerast í borginni.

Afhverju er himinin blár?

12. september 2008 klukkan 14:46
Jæja kannski að maður fari að vakna af dvalanum og bulla eitthvað áfram.

Sumarið leið stóráfallalaust og hef ég ekki mikið að segja um það.. Ég lennti reyndar í soldið skondnum samræðum við dóttur mína um dagin sem að ég ætla að deila með ykkur.

 Þannig var eitt kvöldið að við Tekla vorum að búa okkur undir svefnin og vorum báðar að bursta tennurnar inná baðherbergi þegar að hún segir allt í einu grafalvarlega " Mamma Hildur segir að tippið verði að fara í klobban til að börnin verði til", ég snarhætti að bursta tennurnar og segi með seimingi jaaaá segir hún það.
Hún tekur burstan út úr sér og segir soldið byrstum tón
" hvernig er það mamma viljið þið pabbi ekki gera svoleiðis?"
Ég finn hvernig æðarnar byrja að tútna á enninu á mér og ég horfi á sjálfan mig í speglinum með froðuna lekandi niður á höku og reyni að hugsa upp eitthvað til þessa að snögg enda þessar samræður.
Hún horfir á mig og segir" finnst ykkur það ógeðsslegt??? ?"og skilningurinn skín úr augunum" Mamma þið verðið bara að gera það annars eignast ég aldrei systkini!!!"
uuuhaaaaa hóst tjaaaa ... Ég er alveg að farast og heilinn á mér er á yfirsnúning að hugsa upp eitthvað snjallt og einfalt svar og segi " það er ekki alltaf nóg maður ræður því ekki alveg sjálfu guð ræður því líka" segi ég og held nú að ég sé sloppin.
"Vill guð ekki að ég eignist lítið systkin"????? Og bláu augun glansa pínulítið..
 HJÁLP!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Láka er hvergi að sjá til að bjarga mér frá  þessum spurningaflaumi og þá segi ég " sko Guð ákveður hvenær fólk fæðist og hann er búin að ákveða  tíman sem systkini þitt kemur og hann er bara ekki alveg strax.
Hún horfir á mig í smástund og meltir þessar upplýsingar leggur svo frá sér tannburstan og skríður upp í rúm. Ég er löngu búin að kyngja tannkreminu stend eftir inná baðherbergi og vona að ég hafi afgreitt þetta mál í bili .

Linda Björk Pétursdóttirhahah hún er alveg prizeless!!! :-D

Finnst ykkur það ógeðslegt?! :-D
#1
12. september 2008 klukkan 14:57
 
Gummi Simma
Hehehe... Tekla frænka er snillingur :) löngu búin að átta sig á hvernig lífið virkar.

Get þó ekki sagt að ég öfundi þig af að hafa fengið þessar spurningar eins og kalda vatnsgusu í andlitið... efast um að ég hefði haft svör á reiðum höndum. ... ja... ekki nema að segja bara sannleikann.

Þessvegna er ég alltaf að sanka að mér "einum random hlut" til að segja við hvert tilefni. Þú ættir að koma þér upp þannig líka ;)
#2
12. september 2008 klukkan 15:04
ArtemisHAHHAHAHA!! Já Sóley þú verður bara að bíta á jaxlinn og gera það þó þér þyki það ógeðslegt ;-)

Og Guði sé lof að þú sért byrjuð að blogga aftur ;-)
#3
12. september 2008 klukkan 15:11
 
bylgja Hrönn
jáhá, þau eru ekkert vitlaus þessi grey !!!! hehehhe
Bara fyndin hún dóttir þín .-)
#4
12. september 2008 klukkan 15:14
Já, svaraðu nú! finnst ykkur þetta ógeðslegt?? hahahaha snillingur...
#5
12. september 2008 klukkan 15:42
 
Tinna
Hún Tekla er alveg einstök, enda komin af einstöku fólki ;)
#6
13. september 2008 klukkan 19:45
hreinasta snilld.....
hefði viljað sjá svipinn á þér við þessar spurningar
#7
14. september 2008 klukkan 21:25

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Sóley Guðfinna Arnórsdóttir
  • Atvinna: þjónustufulltrúi
  • Hjúskaparstaða: í Sambúð með örvhentum víkara :-)
  • Um mig: Á yndislega Emil í Kattholti stelpu!! sem að heldur mér á tánnum alla daga :-)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...