Ótrúlegt en satt!
Sælt veri fólkið.
Í tilefni af því að í dag eru níu ár síðan að ég kreisti hana Teklu mína í heimin langar mig að rifja upp söguna af því þegar að hún fæddist.
Ég vil fullvissa ykkur um það að allt sem að hér kemur fram er heilagur sannleikur og stundum er lífið bara eins og léleg sápuópera.
Þetta var á köldu Nóvember kvöldi og enþá átti ég viku eftir í settan dag Láka var boðið í létt vinnu djammm og ég fullvissaði hann um það að ég væri sko ekkert að fara að eiga strax þannig að hann skundaði glaður i bragði til Finnboga í djammið.
þegar að klukkan var byrjuð að tifa í tvö fæ ég allt í einu þessa svakalegu pissutilfinningu og dríf mig á klósettið og er varla sest þegar að ég heyri þennan háa smell og niðurúr mér gusast þvílíkur vatnsflaumur og mig grípur svakaleg hræðsla og langar skyndilega til að hætta við þetta allt saman .
Ég hringi í Láka sem að eins og strákarnir lýsa því hendist uppúr sófanum hjá Finnboga og er komin út í bíl með Lindu driver á nokkrum sekúntum.
Þegar að hann mætir á staðinn er mamma komin og og búið að hringja á sjúkrabíl. Ég skipa Láka að setja nauðsynjavörur í tösku og svo er ég flutt uppá sjúkrahús og inná stofu .
Einhvern tíma tók að finna Ljósmóðurina á vakt og þegar að hún loksins mætir þá tilkynnir hún mér að hún nenni þessu enganveginn hún hafi verið heima að slappa af! Og af henni leggur sterkur þefur sem að ég get ekki alveg áttað mig á eins og rosalega sterk tópaslykt.
Svo byrjar ballið og ég engist með hríðar og er komin með grímuna á andlitið sogandi í mig deyfigasið sem að ljósan setur Láka í að stjórn á, ég öskrandi á meira magn og hann segjandi "nei Sóley þetta er nóg"
Úff! hann var orðin vel hræddur við mig þá ;-)
Ljósan væflast eitthvað í kringum mig segjandi mér hvað hún nenni þessu EKKI og hvað hitt og þetta sé ógeðsslegt, tengt fæðingunni og sest við rúmið og byrjar að strjúka á mér bakið. Láki skreppur fram og á meðan ég ligg í fósturstellingunni með grímuna á mér heyri ég allt í einu háar hrotur!!´
Ég gjóa augunum yfir grímuna á ljósuna sem að liggur með hausinn á bakinu á mér STEINSOFANDI!! OG HRJÓTANDI EINS OG HRÚTUR MEÐ SLEFUNA ÚR MUNNVIKINU.
Ég lít með hryllingi á Láka sem að í þessu kemur inná stofuna með vatn handa mér, við horfumst í augu og Láki fer að ræskja sig hátt við hliðina á kellingunni sem að hrekkur upp þurkar slefuna og heldur áfram að strjúka mér á bakinu gefandi okkur nákvæmar lýsingar á öllum hennar kærustum bólfélögum og stað og stund á því hvenær og hvernig hún missti meydómin 40 árum áður, það bókstaflega suðaði í eyrunum á okkur!
En í barnaskap okkar þorðum við ekki að klaga hana þvi að hún var eina ljósmóðirinn í bænum og við héldum að þetta væri ekki hægt án hennar.
Svo kemur Tekla í heimin áfallalaust og eru þá læknir og hjúkkur komnar á staðinn og við höldum að við séum laus við kellinguna.. en Nei!! þegar að fæðingin er búin fer læknirinn og allt hjúkrunarfólk. Láki tekur Teklu vafða inní handklæði og labbar með hana framm alveg í sæluvímu yfir erfingjanum.
Ég aftur á móti ligg í svita mínum með fæturnar uppí loftið í ístöðunum ein með kellingunni inná stofunni og bíð þess sem verða vill.
Hún hvessir glyrnunum á mig og segir " ÉG NENNI EKKI AÐ SAUMA ÞIG"!! ÉG ÆTLA AÐ FARA FRAM OG FINNA EINHVERN SEM AÐ NENNIR AÐ SAUMA ÞIG Ég horfi skelfingar augum á hana strunsa út af stofunni ég liggjandi í stellingu sem að engri lifandi manneskju finnst gaman að liggja í og hugsa með mér hvað ætli ég verði hérna lengi og hvern ætli hún byðji um að sauma mig
Svo birtist hún skömmu seinna ein og og segist víst verða að sauma mig því að það nenni engin annar að gera það og svo stoppar hún í herlegheitin og hrósar sjálfri sér fyrir snilldina við hvert spor.
Þegar að þetta er loksins búið skelli ég mér í sturtu og hlakka mikið til að fá að skríða uppí rúm og sofna vel. Ég næ í töskuna sem að Láki hafði pakkað í æsingnum í byrjun og týni upp íþrótta buxurnar hanns Láka tannburstan hanns Láka og fleiri hluti sem að Láka finnst gott að hafa með SÉR þegar að hann gistir annarstaðar!!!! hann biður mig afsökunar í bak og fyrir og skilur ekkert í þessu hafði náttlega verið við skál þegar að þessi verknaður var framin 
En ég skríð upp í rúmið og fæ mér laaangan góðan svefn..
Ég vil taka það fram að þessi kona er ekki starfandi Ljósmóðir í dag og átti víst við mikið drykkjuvandamál að stríða.
Von um betri reynslu næst :-)
ps. sem pottþétt verður.. :-)
kv Bylgja
Sorry þessa langloku, mundi þetta bara allt í einu!!!
Og ég veit ekki hvað oft ég hef heyrt þessa sögu minnir mig á margar góðar stundir, fer vonandi að koma að eini svoleiðis ;O)
Jæja ætla fara baka fyrir veiðimanninn og senda honum köku með fari sem ég veit um inní djúp :O)
Gaman af þessum fæðingarsögum, mín var eins og í bíómynd, sprungið á bílnum og allt HaHaHahaHA :o) Góða helgi sæta mín, og til hamingju með fallegu stóru stelpuna ykkar!!!
þú ert rosalega góður sögumaður og þetta blogg er alveg að redda næturvaktinni hjá mér ;)


