Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Skráið ykkur á !!!!!

Skráið ykkur á getrvk.com og þá fáið þið netblað sent til ykkar á hverjum fimmtudegi þar er fjallað umm allt sem er skemmtilegt og áhugavert að gerast í borginni.

Ógöngur!!

28. mars 2007 klukkan 10:13
Ég verð að segja ykkur hvað ég gerði í hádeginu á mánudaginn síðasta.
Þannig var að á sunnnudagskvöldið lá ég í mestu makindum upp í sófa að horfa á imbann þegar að síminn hringdi og ofurhress stelpurödd segir mér ég hafi lennt í úrtaki og spyr hvort að ég vilji mæta á fund um atvinnnumál  í hádeginu dagin eftir og að í staðinn fengi ég gjafabréf í Hafnarbúðinni andvirði 7500krGráðugurÉg fékk náttúrlega dollaramerki í augun og hélt það nú ég gæti sko alveg haft svakalegt vit á atvinnumálum á Ísafirði fyrir 7500 kall.
Og mín mætti stundvíslega kl 12:00 upp í skrifstofuhótel búin að setja upp gáfu svipinn og alltGlottandi Og þar stóð hann Pétur brosandi og bauð mér inn í herbergi þar sem að var dekkað borð með fult af girnilrgum ávöxtum súkkulaði ,súpu og brauði,Það voru nú farnar að renna á mig tvær grímur og ég fór að velta því fyrir mér hvort að ég væri búin að koma mér í hroðalegar ógöngur.
Svo fara Ísirðingarnir að týnast inn einn og einn og við setjumst hvort móti öðru öll hálf ráðvilt á svipin og bíðum þess sem verða vill. Þá birtist eldhress gaur sem að býður okkur velkominn og fer svo að spyrja mann í þaula um SJÁVARÚTVEGIN!! Ég geri mér grein fyrir því að hann er okkar vestfirðingar aðal tekjulind og allt það en Jesús!! ég hef ekki hugmynd um hvernig er best að breyta eða bæta hann á nokkurn hátt!! En allir þarna inni virtust hafa gríðarlegt vit og áhuga á þessu og töluðu hvert í kapp við annað,
 En ég reyndi bara að gera mig eins littla og lítt áberandi þarna inni og ég gat, og þegar að ég neyddist til þá skrækti ég eitthvað ámátlegta og horfði byðjandi augum á mannin um að láta mig í friði,sem að hann gerði.En á þessari lífsreynslu græddi ég heilar 7500krónur og ég held að ég hugsi mig tvisvar um áður en að ég mæti á fundi um málefni sem að ég hef ekki hundsvit á.

Mánudagur til mæðu???

26. mars 2007 klukkan 09:32
Jæja þá er kominn mánudagur og heil vinnuvika framundan.Helgin er búin að líða alveg ótrúlega hratt ég var að vinna í tveimur veislum, ég og Beggý sýndum snilldar þjónustutakta við stormuðum um veislusalina eins og óðar rifum glösin úr lúkunum á saklausu fólki sem  að þorði ekki að segja múkk þegar að það sá svipin á okkur.
Svo hlupum við niður á Langa manga með öndina í hálsinum af því að við héldum að við værum að missa af einhverju geeeeðveiku!!!Og viti menn við vorum ekki að missa af neinuHissaSettumst  út í horn og horfðum tómum augum á hvora aðra .he.he og svo fór ég heim  í bólið.
En annars fín helgi og bara gaman að vera til Hlæjandi

Hmmm....

23. mars 2007 klukkan 11:04
Veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessari stjörnuspá en dæmi hver fyrir sigÓákveðinn

  

Stjörnuspá

VatnsberiVatnsberi: Ef maður reynir að vera of gáfulegur, verður allt að bulli. Gáfuleg hugsun sem endurtekur sig svæfir fólk að lokum. Klárasta fólkið þarfnast þess að fá að vera bjánar, og þú ert einn af þeim.

Er verið að segja að ég sé gáfuð eða heimsk!!!  Be gentle..  Ullandi

Nú er nóg komið!!

22. mars 2007 klukkan 18:30
Jæja !Nú er nóg komið ég er gjörsamlega hætt að hafa mig til.
Manneskjan sem að vann á snyrtistofu og var stríðsmáluð á hverjum degi í fimm ár nennir ekki að líta lengur í spegil nema til hátíðarbrigðaSkömmustulegur
Ekki misskilja mig ég er alls ekki að segja að maður þurfi alltaf að líta út eins og barbedúkka en þetta er orðið full mikið af hinu góða.Nú ætla ég að venda mínu kvæði í kross og eyða kvöldinu í að plokka,srekkja ,lita,vaxa, blása og mýkja í þeirri von um að spegilmyndinn verði frýnilegri í fyrramálið. Svo dauðlangar mig líka til að sannreyna það sem að Tinna símamær sagði mér að ef að maður blæs hárið á sér flott og setur svo gamlar nælonsokkabuxur á hausinn og sofi með þær þá verði hárið ennþá flott eftir blásturinn um morgunin.
PS. það verður líka bónus að sjá svipinn á Láka þegar að ég mæti svoleiðis upp í rúm he.he.....
hmm... þetta ætti að verða mjög athyglisvert og sársaukafullt kvöld sem að ég á fyrir höndum.. en beauty is pain!!!! Mig langar að enda þetta á vísu eftir mína elsku mömmu. 

                            Að örvænta er ekkert vit
                            Það eyðileggur sérhvern mann
                            ég fæ mér smink í smörtum lit
                            og smelli yfir sannleikann.Glottandi

Og Helvíti fraus......

22. mars 2007 klukkan 09:34
Já það er rétt!!! Helvíti fraus og Sóley er farin að bloggaBrosandi
Ég sit hérna og bíð eftir því að andinn komi yfir mig og ég byrji að ryðja úr mér visku í bland við stórkostlega brandara sem að fá þig lesandi góður til að andvarpa af einskærri hrifningu.(er ekki annars í lagi að vera með væntingar svona í fyrsta bloggi???)
Fékk stelpurnar mínar í mat í gærhvöldi Thelmu og Beggý í indverskan rétt sem að samstarfsmenn þeirra fá að þjást fyrir í dag sorry stelpur!!! það var mikið hlegið og eitt af því sem að var rifjað upp var hræðsluáróðurinn sem að foreldrar manns notuðu á mann þegar að maður var krakki eins og ekki snúa þér svona í hringi!! þú færð garnaflækju, og ef að þú grettir þig svona þá festistu þannig ,og maður trúði þessu algjörlega var sviplaus með öllu í marga daga á eftir he,he en annars svaka fínt kvöld hjá okkur.
 Jæja hætt að bulla í bili bæjó

Prófíll

  • Nafn: Sóley Guðfinna Arnórsdóttir
  • Atvinna: þjónustufulltrúi
  • Hjúskaparstaða: í Sambúð með örvhentum víkara :-)
  • Um mig: Á yndislega Emil í Kattholti stelpu!! sem að heldur mér á tánnum alla daga :-)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...