Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Skráið ykkur á !!!!!

Skráið ykkur á getrvk.com og þá fáið þið netblað sent til ykkar á hverjum fimmtudegi þar er fjallað umm allt sem er skemmtilegt og áhugavert að gerast í borginni.

What!!

09. maí 2007 klukkan 10:17
Púff... Ég lennti í rökræðum við yfirmanninn um það hvað séu karlamannsverk og hvað séu kvenmannsverk!! Og eins og þeir sem að þekkja mig þá er þetta mikið hita mál, og eiginlega ekki farandi  út í þessa umræðu við mig svo mikið hita mál er það .
Nema hvað hann fer að segja að sumt séu nú kannsi bara störf sem að henti konum betur og annað henti hinu kyninu betur.Ég fer náttúrulega strax að horfa illilega á hann og spyr hann hvern fjandann hann meini?? Bara segir hann konur eru nú t.d bara ekki eins sterkar og karlmenn þannig að þær geti nú ekki gert sum störf sem að karlar geti osfrv. Augun í honum eru farinn að að flögta og hann er greinilega farinn að skima eftir stystu útgönguleið ef að ég skildi gerast árasagjörn Saklaus
Ég reyni nú að halda ró minni og tilkynni honum það að það sé nú bara allur gangur á því hvað konur og karlar séu sterk!! En jú auðvitað eru nú karlmenn almennt líkamlega sterkari  en hann viðurkenndi að við þyldum betur sársauka en hann bætti við að við værum samt yfir höfuð meiri væluskjóður Öskrandi What!!!
Karlmenn meiga ekki fá kvef þá byrja þeir að væla og þurfa að láta þjónust sig með allt!!!Hann  segist nú ætla að fara inn á skrifstofu því að honum lítist ekki á svipin á mér.Ég skil þetta ekki ef að ég kvenmaðurinn er svona aum og vælin við hvað er hann þá hræddur??Ullandi 

Djamm í borg óttans!!!

07. maí 2007 klukkan 10:55
Jæja góðir hálsar.
 Þá er ný vinnuvika byrjuð og ekki laust við að maður sé soldið þreyttur eftir helgina.
Við stelpurnar hjá Símaverinu vorum svo lánsamar að vera boðið í svona verðlauna ferð til Reykjavíkur í boði fyrirtækis sem að við erum búnar að vera að þjónusta alveg sérstaklega velGlottandi
Þar var okkur boðið tvisvar út að borða og fengum gjafabréf í Kingluna og gátum þar af leiðandi verslað  okkur dress fyrir kvöldið.
Planið var að fara út að borða og svo að enda kvöldið á Players á Sálinni Hans Jóns míns. Við byrjuðum á því að storma um Kringluna eins og ÓÐAR manneskjur, síðan var haldið upp á hótel að gera sig sæta. Við fórum svo út að borða Pöntuðum okkur stærstu frosnu margaritu sem að var í boði og flotta nautasteik og fíluðum okkur alveg í spað.
Svo var komið að því að fara að laga varalitinn og þá gerðist það!!!!
Ein af okkur var að koma út af klósettinu og við hinar biðum í RÖÐ ásamt fleirum  hún var að fíla sig feitt í nýja dressinu og búin að laga meikuppið og allt.EN hafði fyrir slysni girt pilsið að aftan niður í G strenginn.
ÓJÁ!! hún dillaði berum rasskinnunum framan í hálfan veitingastaðinn og var kominn nánast út í leigubíl þegar að við rönkuðum úr sjokkinu og stukkum á hana og rifum pilsið upp úr strengnum!!Sem betur fer er stúlkan mikill húmoristi og hló bara að þessu öllu saman og vorum við að taka reglulegar hláturrokur yfir þessu alla nóttinaHlæjandi
Svo var farið á Players og það var gjeggjað stuð en við prísuðum okkur sælar með það að hafa haldið augunum eftir þessa ballferð því slíkur var æsingurinn í kellingunum þarna að ef að maður reyndi að nálgast sviðið þá voru klærnar sýndar og hvæst á okkur því að þær kepptust  við að ná athyglinni hjá poppgoðunum sjáfum.
Sem betur fer lögðum við ekki í þá keppni og héldum því öllum útlimum og alveg bærilegri sjónUllandi
En allavega við skemmtum okkur konunglega.

Þar til næst bæjó.

Friends!!!!

03. maí 2007 klukkan 10:08
Jæja allir vina aðdáendur!! Í kvöld ætlum við Thelma að láta reyna á þekkingu ykkar á þáttunum vinsælu sem tröllriðu þjóðinni seinustu 10 árin, og verðum spyrlar á Langamanga í kvöld.
Vonandi mæta sem flestir og reyna að vinna bjórkassann góðaHlæjandi 

Það er að koma helgi!!

27. apríl 2007 klukkan 09:22
Jæja loksins er að koma helgi og ekki nóg með það heldur er næsta vinnuvika ekki nema fjögurradaga vinnuvika ekki slæmt það.
Þessari helgi ætla ég að eyða í garðvinnu og fengu nágrannar mínir forsmekkinn af því í gærkvöldi þegar að ég æddi um garðinn minn með vélsög og skíðagleraugu og spændi niður runnana sem að í sakleysi sínu risu hér og þar um garðinn og lítur garðurinn minn út eins og vígvöllur í dag .
Ég hef alltaf verið kvennmaður sem að á erfitt með að heyra það að ég eigi ekki að gera hitt eða þetta af því að ég sé kona og að þetta og hitt séu karlmanns verk!!!Og hefur Láka eflaust fundist vegið að karlmennsku sinni þegar ég hef tekið köstin og rokið út til að skipta um öll dekkin á bílnum. Eða í gærkvöldi þegar að hann kom heim úr badminton og konan búin að vera að leika sér með vélsögina og gera allt sem að karlmaðurinn á heimilinu átti að geraSaklaus
 En ef að þú þarft að losna við niðurbælda reiði eða heift þá held ég að þetta sé lækningin því það var þvíllíka útrásin sem að ég fékk í gær, og læddist Láki meðfram veggjum allt kvöldið og spurði svo voða sakleysislega hvort að ég myndi ekki skila vélsöginni um Leið og ég færi í vinnuna.he.he
En annars geri ég bara ráð fyrir að þetta verði þrusufín helgi enda eru garðverk og þrítugsafmæli á dagskránni. jæja nóg af bulli.. Góða helgi Svalur

Home sweet home...

23. apríl 2007 klukkan 09:38
Jæja komin heim..Og ég get nú alveg viðurkennt það að því fylgja nú blendnar tilfinningar því að þessi ferð var bókstaflega ÆÐI!!!.
Það var 17 til 20 stiga hiti og sólSvalur þannig að það var frekar fúlt að sjá veðrið sem að beið manns heima í heiðardalnum.Nú að sjálfsögðu var verslað eins og brjálæðingar Glottandi á milli þess að maður sat á pöbbunum og ég held að liðið hljóti að vera komið með snert af bjóreitrun miðavið magnið af bjór sem að var innbyrgt í þessari ferð.
Hótelið var fimm metra frá Oxfordstreet þannig að það gat ekki verið betra.Við skelltum okkur á Queen showið og jesús minn!! Hvílikt show það var algjör upplifun að fara á það og söngurinn og dansarnir ALLT!! geðveikt.Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem að ég kem til London en þessi ferð gerði útslagið ég gjörsamlega fallin fyrir London það er allt æði þarna fólkið, djammið ,búðirnar, umhverfið, veðrið .
Ég meira að segja tilkynnti Láka það að héðan í frá fer ég einusinni á ári til London MINNST!! he,he , best að byrja að safnaUllandi PS. Beggý ég keypti mér þrjú pör af skómGlottandi

Andleysi!!!

16. apríl 2007 klukkan 14:09
Já það er ekki gott þegar að andleysið grípur mann heljartökum og maður hefur ekki andagift í eina heilvita setningu hvað þá heldur meiraFýldur Ég er að fara til London á fimmtudaginn með starfsmönnum Flugfélagsinns og mökum og verð fram á sunnudag. Það hefur verið ca.árviss viðburðu hjá okkur að fara saman í helgarferð og er London næsti áfangastaðurinn,þannig að væntanlega verð ég skundandi niður Oxfordstreet á milli pöbba og búða eftir þrjá dagaSaklaus
Á meðan verða Ólöf og Thelma skundandi um sviðið á Óbeislaðri fegurð og er ég nett fúl yfir því að fá ekki að hvetja þær áfram ekki það að ég held að það snúist nú meira um hjá þeim að hafa gaman af.
Mig langar að enda þetta blogg mitt á vísu eftir elsku mömmu mína svona í tilefni af keppninni, en hún orti þessa vísu þegar að henni fannst komið nóg af fegurðartali í öllum miðlum landsinns.

               Við þessu er ekki gott að gera 
               en gömul fávís kona spyr.
               Afhverju þurfa allir að vera
               ungir,grannir og laglegir??
                                           

Blessuð börnin....

10. apríl 2007 klukkan 14:58
Hún dóttir mín á það til að ganga nærri okkur foreldrum sínum  og hefur hún erft stríðnina frá föður sínum.
En það kom vel á vondann á miðvikudaginn seinasta. Þá fær Láki símtal þar sem að hann heyrir dóttir sína öska af ölllum kröftum PABBI!!! ÞAÐ ER KVIKNAÐ Í HÚSINU!!!! Láki henndist uppúr stólnum sem að hann sat í og er kominn út í bíl á sekúndubrotum þá segir hún skellihlæjandi pabbi fjórði april!!!
Sjónarvottar segja þetta hafa litið mjög skringilega út þar sem að hann sést æða í ofboði út í bíl og koma svo labbandi í róleg heitum mínutu seinna. En elskan sú arna misskildi aðeins aprilgabb.
 Það er semsagt ekki allur april sem að maður gabbar heldur bara fyrstiHlæjandi

all good things comes to an end......

09. apríl 2007 klukkan 13:28
Jæja.... þá eru þessir páskar á enda og ég verð að segja að þeir stóðu algjörlega undir væntingumHlæjandi
Stuðið byrjaði á miðvikudaginn í Krúsinni  þar sem að maður fékk að horfa á Ísafjarðar fegurstu fljóð etja saman kappi um hver er  fegurst versfirskra kvenna og svo var að sjálfsögðu tjúttað fram á rauða nótt þar sem undir lokin einkenndust orðaskipti okkar vinkvennana af orðinu TEKILA!!!og var ástandið eftir þvíUllandi
 Á skírdag var svo haldið í Bolungavíkina þar sem hópur af stórskemmtilegu fólki var saman komið ti að fagna 30 afmæli Guðbjarts Flosasonar og ekki stóð á veitingunum frekar en við var að búast hjá þeim skötuhjúum Írisi og Guðbjarti og til marks um það get ég sagt frá því að einn veislugesturinn sofnaði útí blómabeði og vaknaði víst tveimur tímum seinna og enginn tók eftir neinu he.he 
Á Föstudag var nú frekar lágt á manni risið eftir tveggjadaga djamm og var þá bara reynt að taka það rólega kíkja á Aldrei fór ég suður og horft á sjónvarpið.
Laugadagur var rólegur bekkjarbræður mínir Axel og Brynjar ásamt frúm kíktu í heimsókn og  svo komu Íris og Thelma og það var setið og kjaftað fram á nótt.
Páskadagur var eins og hjá flestum framan af, páskaeggjaát og afslöppun og svo góður matur um kvöldið þar sem ég reyndi að heilla fólk með kokkahæfileikum mínum .
Í dag er svo annar i páskum og elskan hann tengdapabbi er 70 ára í dag og mun maður fagna þeim áfanga með honum.
Allt í allt fínir páskar og við tekur svo ein af mínum uppáhalds árstíðum vorið með fuglasöng, fermingum og útskriftum.Svalur
Þar til næst bæjó.

Páskar,Páskar la la la la .........

02. apríl 2007 klukkan 09:20
Jæja góðan daginn gott fólk!! Vissuð þið  Páskarnir eru að koma??? Í dag er Mánudagsmorgun og ég vaknaði með fuglasöng í hjarta og garnagaul í maga. Mætti ofurhress í vinnuna og tala ekki um annað en allt sem að ég ætla að gera um Páskana ,ég held að samstarfamenn mínir séu alveg að fá nóg.
Já kæru vinir ég ætla að vera eins og útspýtt hundsskinn út um allann bæ  í djammfílingunum.Haldið þið ekki að ég verði frýnileg he he.  Systir mín hún Laufey tilkynnti mér reyndar að hún kemur ekki með littlu krúsuna sína Sniff, sniff Fýldur
 En stóra krúsan hennar hún Carmen kemur með vinum sínum og ætlar að upplifa ísfirskt djamm eins og það gerist best, og að sjálfsögðu tel ég það skyldu mína að hjálpa henni við þaðHlæjandi
Annars var þetta bara rólegheita helgi hjá mér og mínum  Þreif húsið upp í rjáfur og er búin að segja familíuni að hún megi ekki hreyfa sig inni og þurfi helst að borða úti í garði fram að páskum svo að þrifin verði ekki til einskis!!
Ég vill endilega benda ykkur á Netblaðið getrvk.com sem að Carmen rekur og á. Það er blað sem að fjallar um skemmtilega og áhugaverða hluti sem að eru að gerast. Ef að þið farið þarna inn og skráið ykkur þá fáið þið blaðið sent á hverjum fimmtudegi á netfangið ykkar og það kostar ekki neitt!!! Jæja nú er nóg komið af bulli í dag Bless í bili.   P.S Ég fék að sjálfsögðu skóna Glottandi

Mig langar í skó!!!!!!!!!!!!

29. mars 2007 klukkan 14:17

   


Mig langar í  skó :=( Ég veit að ég er skó frík og Láki skilur ekki þessa skóáráttu sem að ég er heltekin af .Honum finnst bara að maður eigi að eiga kuldaskó, spariskó og íþróttaskó og kannski vinnuskó. En það gengur enganvegin!!
Þessvegna leyta ég til ykkar kæru  lesendur um hjálp og að koma með ráð hér í athugasemdum um það hvernig ég get sannfært minn elskulega mann um brýna nauðsyn þess að ég bæti þessum skóm í safniðHlæjandi

Prófíll

  • Nafn: Sóley Guðfinna Arnórsdóttir
  • Atvinna: þjónustufulltrúi
  • Hjúskaparstaða: í Sambúð með örvhentum víkara :-)
  • Um mig: Á yndislega Emil í Kattholti stelpu!! sem að heldur mér á tánnum alla daga :-)

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...